Lífið samstarf

Dá­leiðslu­dagurinn 11. maí

Dáleiðsluskóli Íslands
Margir klínískir dáleiðendur eru nú starfandi og þeim fjölgar á hverju ári. Mynd/Ásta Kristjándóttir.
Margir klínískir dáleiðendur eru nú starfandi og þeim fjölgar á hverju ári. Mynd/Ásta Kristjándóttir.

Þrjú félög hafa tekið sig saman um að halda kynningu á Dáleiðsludaginn, þann 11. maí, en dagurinn verður framvegis annan laugardag í maí ár hvert. Félögin sem að þessari kynningu standa eru Dáleiðslu félagið, Félag Klínískra dáleiðenda og Dáleiðsluskóli Íslands.

Kynningin verður haldin á höfuðborgarsvæðinu, á Selfossi og á Akureyri.

Meðferðardáleiðsla og Hugræn endurforritun sífellt vinsælli

Ingibergur Þorkelsson, skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands, segir að klínísk dáleiðslumeðferð og Hugræn endurforritun njóti sífellt aukinna vinsælda.

Ingibergur Þorkelsson er skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands.  Mynd/Ásta Kristjánsdóttir

Ástæðan er einfaldlega sú að meðferðin virkar

Aðspurður um ástæðurnar segir Ingibergur: „Ástæðan fyrir þessari miklu eftirspurn eftir meðferðardáleiðslu og Hugrænni endurforritun er einfaldlega sú að hún virkar. Fólk er að gefast upp á samtalsmeðferðum þar sem það hittir meðferðaraðila aftur og aftur og engar breytingar verða á líðan þess. Þá eru margir klínískir dáleiðendur nú starfandi og þeim fjölgar ár frá ári.“

3 klukkutímar í einu í 2-3 skipti

Ingibergur heldur áfram: „Þetta er ekki meðferð sem er unnin á 50 mínútum á viku. Hvert skipti tekur 2-3 klukkutíma. Stundum nægir eitt skipti en algengast er að meðferðin taki 2-3 skipti.

Þótt meðferðarþeginn sé í dáleiðsluástandi er hann alltaf vakandi og fylgist með öllu, stjórnar í raun meðferðinni. Unnið er með innri styrk meðferðarþegans og þá er hægt að eyða föstum tilfinningum sem verða til við áföll.

Þetta er líklega eina meðferðin sem getur eytt þessum föstu tilfinningum sem verða til við áföll. Almennt er talið að það sé hreinlega ekki hægt og fólk verði bara að sætta sig við að líða illa.

Hugræn enfurforritun nýtir það besta sem þekkist úr öðrum meðferðum, svo sem persónuþáttameðferð (e. Ego State Therapy), þáttameðferð Roy Hunters og Yager-meðferð sálfræðiprófessorsins Dr. Edwin Yager auk nýjustu rannsókna í taugafræði.“

Á kynningunum á dáleiðsludaginn verður hægt að hitta klíníska dáleiðendur og fá upplýsingar um meðferðina og kynna sér auk þess sjálfsdáleiðslu og HypnoFlash – hraðvirka verkjastillingu.

Hægt verður að fá upplýsingar um dáleiðslunámskeið Dáleiðsluskóla Íslands.

Jafnframt er boðið upp á hópdáleiðslur fyrir þá sem vilja kynnast því hvernig er að upplifa dáleiðsluástand.

Friðsæl fæðing

Á höfuðborgarsvæðinu verður einnig kynnt námskeiðið „Friðsæl fæðing“ fyrir þungaðar konur sem vilja upplifa friðsæla fæðingu án ótta.

Allar nánari upplýsingar á vef Dáleiðslufélagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×